hvað gerir Blásteinn

Blásteinn er lítið hugbúnaðarhús sem hefur frá nóvember 2006 haft megin áherslu sína á þróun á vefumsjónarkerfinu Oliver. Kerfið er hugsað fyrir lítil fyrirtæki eða verslanir sem vilja ódýra og þægilega lausn. Blásteinn hefur þar að auki tekið að sér ýmis önnur verkefni tengd vefnum, sem og þróun hugbúnaðar fyrir Windows.

Hversvegna velja Oliver?

Oliver er eingöngu á íslensku, auðvelt og þægilegt í notkun ásamt því að vera hlaðið fítusum. Ekki er gerð krafa um að hýsa hjá okkur enda erum við ekki með hýsingarþjónustu.

Ekkert mánaðargjald né ársgjald af neinu tagi fylgir kerfinu, aðeins er um eitt verð að ræða og er það gefið upp við kaup á kerfinu. Viðskiptavinum er síðan frjálst að nota kerfið eins lengi og þeir óska.

Allir viðskiptavinir fá öryggisuppfærslur þeim að kostnaðarlausu á meðan kerfið er í notkun. Óski viðskiptavinur eftir breytingum er samið um þær sérstaklega, hvað varðar bæði tíma og verð.

Útlitshönnun / hýsing vefsíðna

Hýsingu er hægt að fá hjá mörgum fyrirtækjum, og tvö af þeim eru Eðalnet og 1984. Þeir eru ódýrir og vandaðir aðilar sem sjá engöngu um að hýsa vefsíður og vefsíðukerfi líkt og Oliver.

Sérhönnuð útlit er hægt að fá hjá flest öllum auglýsingaskrifstofum og margmiðlunarstofum landsins, og ein af þeim vönduðustu og bestu eru Gagarin. Fyrir þá sem eru að leita að ódýrari útlits lausnum eru byrgjar erlendis að selja tilbúin útlit og mælum við með ThemeForest.

 

  • Ekkert mánaðargjald
  • Frjálst val á hýsingu
  • Útgefið á íslensku
  • Fríar öryggis- uppfærslur
  • Ótakmarkaður notkunartími
  • Sveigjanleg vefsíðu útlit