Í gegnum árin hef ég búið til ýmis lítil forrit fyrir sjálfan mig og vini mína. Nafnið Jobbi kemur frá þeim tíma þegar ég var milli 16 og 17 ára og var notað yfir heimskupör sem við félagarnir gerðum saman. Það þótti viðeigandi þegar ég byrjaði að forrita að nefna forritin Jobbi þar sem þau voru oftar en ekki algerlega gagnslaus og meira uppá gamanið.
Eftir meira en 13 ár í hugbúnaðar geiranum hefur notagildi og gæði Jobbana lagast umtalsvert síðan þeir fyrstu komu út árið 1999. Þegar Blásteinn.com var komið á laggirnar 2006 var alltaf markmið að gera pláss fyrir Jobbana þar og leyfa öllum sem hafa áhuga að hala þeim niður endurgjaldslaust. Vonandi hafið þið jafn gaman af að nota þá eins og ég hef að búa þá til.
Jobbi Upplýsinga Geymsla
Þú getur skráð hvaða upplýsingar sem er með notkun flipa stýringu (tab control) og þegar gögnin eru vistuð í skrá er það dulkóðað með SHA-1 algrímnum, og notast við lykilorð sem þú gefur upp. Þegar opna á skrá aftur er birtur gluggi sem biður um lykil til að afbrengla textann.
Þetta forrit getur reynst afar þægilegt þegar þörf er á að geyma upplýsingar sem aðeins þú hefur aðgang að. Slíkar upplýsingar gætu verið vefsíðu aðgangar, fjölskyldu uppskriftir, brandarar uppistandarans og svo framvegis. Hugbúnaðurinn kemur á bæði ensku og íslensku.
- Upplysinga Geymsla Setup.msi 1.01 MB
- Upplysinga Geymsla Binaries.zip 343 KB
Póker Sharp
Póker Sharp er tölvuleikur í anda Solitaire, og gefur möguleika á 8 leikmönnum (mennskum eða gerfigreind) til að spila á móti hvor öðrum í Texas Hold'em Póker. Gerfigreindin hefur að geyma fjórar mismunandi tegundir spilamennsku, og var smíðuð með það í huga að geta blöffað við og við.
Þessi leikur var þróaður með byrjendur í huga, og því er gerfigreindin ekki of erfið. Einnig er ávalt fast ákveðið magn fjármagns sem hægt er að bjóða (raise) svo það er ekki hægt að tapa öllu á fyrstu lotunum.Fyrir þá leikmenn sem hafa áhuga er hægt að fá "tips" eða hjálp frá gerfigreind leiksins hvað sé best að gera með þau spil sem þú ert með, sjá á skjáskoti.
Póker Sharp var þróaður sem annar verkefni í háskólanum í Álaborg, og var þróað af Þorsteini Sævari Hjartarsyni, Kenneth Høst Pedersen, Dennis Kjærsgård Peitersen og Poul Skjørring Sørensen. Leikurinn kemur því með þrjú tungumál, íslensku, ensku og dönsku.
- Poker Sharp Setup.msi 2.31 MB
- Poker Sharp Binaries.zip 1.76 MB
Jobbi PHP Obfuscator
Hugbúnaður þessi er fyrst og fremst hugsað sem verkfæri fyrir sjálfstæða forritara og/eða fyrirtæki sem vilja vernda kóða sinn frá því að vera breytt eða afritaður án leyfis.
PHP kóðinn verður algerlega ólæsilegur manneskjum þar sem nöfnum er breytt, comment fjarlægð og óþarfa bil og línur eru stytt umtalsvert. Þótt kóðinn sé ólæsilegur manneskjum sér tölva engan mun á function nafni GetCustomerNameByID og Fc863bef3409a41828c19437c120e69a7. Kóðinn mun því keyra alveg eins fyrir og eftir obfuscation. Sjá skjáskot fyrir og eftir.
Jobbi PHP Obfuscator er byggður að hluta á sömu tækni og compiler er byggður. Það er notast við lexer sem færir allan PHP kóða yfir á röð af tokens, sem sendir það yfir til parser sem skynjar uppbyggingu og skilgreiningar. Þessvegna skiptir engu máli hversu margar skrárnar eru, eða í hvaða röð þær eru. PHP kóðinn er skannaður sem ein heild, frekar en ein skrá hver af fætur annari.
Mjög margir obfuscatorar notast við svokallaðar regular expressions, en það þarf ekki mikið til að rugla þær sem og það er ógerlegt að vita hvernig útkoman verður. Jobbi PHP Obfuscator sýnir þér aftur á móti fyrir og eftir glugga með lituðum kóða (syntax highlighting) hvað hann skynjar og mun breyta. Þessi hugbúnaður kemur engöngu á ensku.
- Php Obfuscator Setup.msi 1.14 MB
- Php Obfuscator Binaries.zip 411 KB
Hafir þú áhuga á að notafæra þér þennan Jobba, er mælt með að þú sækir sýnidæmin hér að neðan. Þar er tekið fram hvaða kóða uppsetning er ekki studd og hvernig er hægt að koma í veg fyrir ranga obfuscation.
- php_sample_project.zip 1.00 KB
- php_sample_files.zip 2.53 KB
Jobbi SQL Comparer
Þessi hugbúnaður ber saman tvær útkeyrslur (export) gagnagruns á SQL formi til að sjá hver sé munurinn á milli þeirra. Þetta getur nýst afar vel þegar verið er að vinna með einfalda gagnagrunna, til dæmis fyrir litlar vefsíður.
Þessi hugbúnaður er til sölu ásamt kóða á CodeCanyon.net.




















