S-TEAM var varð til árið 2000 af þremur félögum og er nafnið dregið af fyrsta staf í okkar nöfnum. Við höfum verið þekktir sem Siggi, Snorri og Steini og þaðan er S-TEAM komið til. Við höfum unnið að ýmislegu saman þar á meðal myndbönd eða "sketchar" bæði frumsamið og tribute.
Þetta hefur verið okkar áhugamál saman og þessi myndbönd gerð aðeins til að hafa gaman að því. Viljum við nota tækifærið og þakka öllum þeim sem hafa aðstoðað okkur við að gera þessi myndbönd bæði þeir sem eru í mynd og af.
Þorsteinn Sævar Hjartarson
Snorri Kristinn Þórðarson
Sigurður Arnar Einarsson
Eclipse
Þetta var okkar fyrsta myndband og var gert án neins undirbúnings, bara skotið eftir því hvernig það þróaðist. Hérna var reynt að ná "tilfinningunni" af bílaspennumynd, hraðar klippingar með flotta tónlist undir. Myndavélabatterýið var týnt svo mjög löng rafmagnssnúra þurfti til að gera þetta mögulegt því þetta var tekið á bílaplaninu fyrir utan heima hjá Sigga. Myndbandið heitir Eclipse því bíllinn í myndbandinu er af gerðinni Mitsubishi Eclipse (sú sama og sá græni í fyrstu "Fast and the furious" myndinni).
-
Eclipse.wmv (01:00 - 7.00 MB) Apríl 2005
Síminn
Síminn var hugsaður sem fyndinn sketch sem væri einnig hægt væri að nota sem auglýsingu fyrir einmitt fyrirtækið Síminn. Þetta myndband er tekið upp í heimahúsi foreldra Steina þegar þau voru í burtu yfir páskafrí og er eina myndbandið sem þurfti meira en eitt kvöld til að taka upp. Taktu eftir því að Siggi er að hringja frá Eclipse myndbandinu í upphafi þessa myndbands. Þetta myndband er samið af okkur
- Siminn.wmv (03:04 - 21.5 MB) Febrúar 2006
- Siminn_english.wmv with english subtitles
Tribute
Í afmæli hjá Sigga þetta sumarið var ákveðið að heiðra Fóstbræður með því að velja þrjá af okkar uppáhalds sketchum sem þeir hafa gert og búa til S-TEAM myndband með okkar útgáfu af þeim. Fyrsti sketchinn var tekinn upp í afmælinu hjá Sigga þar sem við erum allir þokkalega vel í því. Næstu tveir voru teknir í vikunni þar á eftir og allt sett svo saman í einu. Fyrstu tveir voru teknir í byggingunni hjá Sigga og sá síðasti á bílaplaninu við Kringluna. Þar sem öryggisvörður kom að okkur áður en tökum lauk og bannaði okkur að halda áfram var rétt hægt að klippa þann sketch saman svo úr kom eitthvað áhorfanlegt.
- Tribute.wmv (02:19 - 16.2 MB) Júlí 2008
- Tribute_english.wmv with english subtitles
Lasinn
Eftir að hafa tekið Fóstbræður fyrir var ákveðið að taka annað tribute og þá Tvíhöfða. Diskurinn Sleikir hamstur er að finna lesna sketchinn Lasinn sem við höfum fært yfir á myndband. Þessi sketch var tekin upp í íbúðinni hans Hermanns sem hann var þá að gera upp. Búningar voru að hluta fengnir að láni frá Íbyggð ehf. og svo af Hermanni.
- Lasinn.wmv (03:14 - 22.6 MB) Desember 2008
- Lasinn_english.wmv with english subtitles
- Lasinn_mistok.wmv (03:47 - 26.5 MB) Fyndin mistök við upptöku á þessum sketch
- Lasinn_storyboard.wmv (01:36 - 5.35 MB) - Upprunalega atriði Tvíhöfða með okkar teiknaða storyboard