um mig

Ég útskrifaðist af tölvubraut Iðnskólans í Reykjavík af forritunarsérsviði. Í ágúst 2005 fluttist ég til Danmerkur og hóf nám við Aalborg University í hugbúnaðar verkfræði. Ég flutti aftur heim til Íslands 2010 og hóf störf hjá virktu hugbúnaðar fyrirtæki sem sérhæfa sig í fjármálahugbúnaði.

Frá nóvember 2006 hefur Blásteinn verið aukavinna samhliða háskólanáminu, og nú kvöld og helgarvinna samhliða fullu starfi. Ég hef unun að því að vinna með skemmtilegu fólki og vinna að áhugaverðum vefsíðum.

Meðal þeirra rannsókna sem ég hef unnið að við Aalborg University eru gerfigreind, tungumálatækni, gagnagrunsfræði og dulkóðun:

  • Booking Systems for Cinemas
    Hér var kannað meðhöndlun samhljóða pantanna (concurrency), notendavæns viðmóts og hönnun miðlægs gagnagrunns. Einnig var þróað notendaviðmót ætlað eldra fólki og þeim sem hafa litla sem enga þekkingu á tölvum til að ná góðum tökum á internet bókunum.
  • Texas Hold’em with AI
    Gerður var tölvuleikur í anda Solitaire sem gefur möguleika á 8 leikmönnum (mennskum eða gerfigreind) til að spila á móti hvor öðrum í Texas Hold'em póker. Gerfigreindin var smíðuð með það í huga að geta "blöffað", spila "þétt" og fleiri þekktar leikaðferðir í póker.
  • Secure Message Board using WWII Enigma Encryption
    Gerð var eftirlíking af dulkóðunarvélinni Enigma sem Þjóðverjar notuðu í seinni heimstyrjöldinni. Hugbúnaðurinn gat svo afkóðað þekkt skilaboð úr stríðinu sem og dulkóðað ný skilaboð. Efnt var til keppni milli rannsóknarhópana um hver gat brotið dulkóðuð skilaboð með því að nota sömu aðferðir og Bretar notuðu í seinni heimstyrjöldinni.
  • Moving objects and language technology:
    Hannað var nýtt gerfigreindar forritunarmál ásamt þýðanda (compiler) og umhverfi í anda GTA2. Greindarkóðinn stjórnaði bifreið sem gat svo skynjað umhverfi sitt og tekið ákvarðanir. Greindarkóðinn var þýddur í dll skrá fyrir .NET 2.0.
  • NXT Robot:
    Vélmenni eða "agent" sem gat leyst gatnamóta vandamál í samvinnu við annað vélmenni. Aðeins var leyft að nota Lego kubba og forritanlegar Lego einingar til að byggja vélmennið. Ekki var leyfilegt að nota forritunarviðmót sem kom með NXT heldur þurftum við að smíða stýringu sjálfir.
  • Streamspin Social network
    Verkefnið gekk út á að sameina hópana til að smíða "large scale" hugbúnað. Búið var til kerfi í anda Facebook eða MySpace og voru einingar kerfisins skipt niður á milli hópa. Í lok annarinnar þurftu einingarnar að ganga saman til að mynda endanlegt kerfi.
  • B.Sc. - System Administration and HPC Clustering
    Verkefnið samanstóð af þremur pörtum: Uppsetning, Kerfisviðhald og svo sérhæfing um "HPC Cluster networks". Hluti eitt og tvö snérust að því að koma upp netkerfi fyrir lítið fyrirtæki og koma upp búnaði til að viðhalda kerfinu (t.d. backup). Megin áhersla var lögð á öryggi netkerfisins og áreiðanleika.
     
    Síðasti parturinn snérist um að samnýta tölvur á neti í HPC cluster ("High Performance Cluster") og fá þær til að vinna í sameiningu til að leysa reikni-þungt verk. Markmiðið var að sýna fram eiginleika samkeyrslu (advantage of paralellism) og útreikninga á öryggi lykilorða með notkun ofurtölu til að brjóta þau.

 
kær kveðja,
Þorsteinn Sævar Hjartarson