Elísabet Eir Garðarsdóttir & Hinrik Þór Sigurdsson - Eigendur Isländsk Ridkonst
"Við hjá fyrirtækinu Isländsk Ridkonst í Svíþjóð opnuðum glænýja heimasíðu www.IslandskRidkonst.se í maí 2008 með vefumsjónarkerfinu Oliver. Við vorum búin að gera okkur grein fyrir því frá upphafi, að með því að opna heimasíðu, þyrftum við að setja okkur í mikla vinnu við að halda síðunni vel við.
Okkur til mikillar undrunar komumst við fljótt að því eftir að við byrjuðum að nota Oliver, að viðhald síðunnar væri leikur einn. Oliver kerfið er gríðalega vel upp sett og auðvelt í notkun svo að hver sem er getur lært á það. Allt kerfið er á íslensku sem gerir það enn auðveldara og skýrara i notkun
Einnig viljum við sérstaklega minnast á samskipti okkar við starfsmann blásteins, þar sem öll þjónusta hans og samstarfsaðila, einkenndust af snöggum og vönduðum vinnubrögðum. Þorsteinn hefur frábært viðmót og var tilbúinn að sníða verkefnið alveg eftir okkar þörfum sem við metum mikils.
Við viljum þakka Þorsteini alveg einstaklega vel fyrir vel unnið verk og ítreka að við erum afar ánægð með útkomuna. Við mælum því að sjálfsögðu hiklaust með Blásteini hugbúnaðarhúsi fyrir þá sem eru að íhuga að opna heimasíðu eða einfaldlega vilja breyta til í sínu gamla kerfi."
Haukur Hauksson - Markaðstjóri 4 home
"Við hjá versluninni 4 home opnuðum nýja heimasíðu www.4home.is með Oliver vefumsjónarkerfi í byrjun desember, og ég varð sko ekki fyrir vonbrigðum með þá ákvörðun að notast við Oliver. Ég hef unnið á önnur kerfi en ég verð að segja að Oliver vefumsjón er með langskemmtilegasta viðmótið af þeim kerfum sem ég hef prófað, það er mjög einfalt og þægilegt í notkun, flott útlit og ekki spillir fyrir að það er allt á íslensku, ég mæli hiklaust með þessu kerfi."
Brynjar Daníelsson - Framkvæmdarstjóri Ónyx ehf
Ónyx ehf er teiknistofa sem var stofnuð árið 2001. Strax frá upphafi gerðum við okkar heimasíðu sjálfir í Microsoft Frontpage af veikum mætti og kunnáttuleysi, sem kannski endurspeglaðist í framsetningu síðunnar og gildi hennar, öll uppfærsla og vinna við að koma nýju efni inná síðuna tók langan tíma.
Í tilefni af 5 ára afmæli Ónyx var ákveðið að leyta til Blásteins hugbúnaðarhúss með gerð nýrrar heimasíðu sem studdist við Oliver vefumsjónarkerfið. Þetta heppnaðist frábærlega og ekki skemmdi fyrir að öll samskipti og viðmót við starfsmenn Blásteins á hönnunarferlinu voru sérlega gagnkvæm varðandi óskir okkar og tillögur þeirra. Niðurstaðan liggur ljós fyrir á www.onyx.is og er sjón sögu ríkari.
Uppbygging síðunnar er einföld og skýr, þar hafa Blásteinsmenn komið fram öllum upplýsingum til viðskiptavina Ónyx á aðgengilegan og einfaldan máta og eru umsagnir gesta okkar við nýju heimasíðunni allar á einn veg: "vel unnin, skýr, einföld í notkun og segir allt sem segja þarf".
Ég get óhikað mælt með Oliver vefumsjónarkerfinu. Það er einfalt og þægilegt í notkun, allar uppfærslur og upplýsingar af heimasíðunni liggja strax ljósar fyrir og ekki þarf að eyða dýrmætum tíma í að finna hvernig hinar ýmsu aðgerðir virka, fyrir menn eins og mig sem ekki hafa þekkingu á HTML kóðun.
Blásteinn Hugbúnaðarhús er aðili sem við getum glöð mælt með!