Oliver vefumsjón

Oliver vefumsjón er skrifað í Php 5.0 og hefur verið í þróun frá 2006. Takmarkið hefur verið að þróa kerfi sem auðvelt er að skilja og er notendavænt í alla staði. Oliver er algerlega á íslensku og auðveldar það enn frekar aðgerðir í kerfinu. Oliver býður upp á eftirfarandi einingar:

  • Fréttir bjóða uppá skoða nánar tengla sem og að hlaða inn mynd með fréttinni
  • Dagbókin er í raun Fréttir með viðbættum athugasemdum. Möguleiki er á að athugasemdir þurfi samþykki stjórnanda síðunnar fyrir birtingu.
  • Vöruúrval skiptist niður í Vöruflokk, Undirflokk og Vöru. Mjög auðvelt er að búa til, breyta uppröðun, færa og eyða flokkum sem og vörum. Vörur hafa einstakt vörunúmer, titil, verð og lýsingu ásamt fleiri eiginleikum eins og uppselt og nýtt. Boðið er upp á að hver vara getur haft fleiri enn eina mynd. Auðvelt er að eyða og hlaða inn nýjum myndum.
  • Tilboð bjóða uppá stök vörutilboð sem og tilboðspakka með mörgum vörum saman. Ekki er breytt upprunalega verðinu á vörunni heldur er stillt tímabil þar sem varan er á tilboði. Þegar það tímabil er liðið fer varan aftur á upprunalega verðið á vefnum.
  • Pantanir einnig þekkt sem Karfa gefur gestum kleift að panta vörur af vefnum
  • Ruslafatan inniheldur allar vörur og flokka sem hafa verið eytt. Það gefur möguleikan á að endurheimta þær vörur og flokka sem eyddir voru. Vörumyndinum er ekki eytt fyrr en búið er að eyða vöru úr ruslakörfunni.
  • Framleiðendur er möguleg viðbót við Vöruúrval til að flokka vörur betur milli framleiðenda. Þetta getur hjálpað til þegar verslun er með nokkur hundruð vörur frá mörgum mismunandi framleiðendum. Fréttir og vefsíðumyndir geta verið flokkaðar milli framleiðenda.
  • Síðustjóri stjórnar hverning aðalvalmynd vefsíðunnar er uppsett, býr til undirsíður og skiptir út myndum á vefsíðunni eins og lógói, auglýsingum og fleiru.
  • Skilaboð sem gestir senda frá vefsíðu, einnig þekkt undir Hafa samband. Hægt er að stilla
  • Tenglar skiptast upp í tenglahópa og tengla. Mjög auðvelt er að skrá nýtt, endurskýra, breyta og eyða tenglum sem og tenglahópum.
  • Minnispunktar er möguleiki fyrir alla notendur og birtast minnispunktar í lítlum kassa sem er staðsettur í vinstra horni skjásins þar til slökkt er á honum.
  • Notendur stjórnar hvaða notendur hafa aðgang að kerfinu, hversu virkir þeir eru og stillir hversu háan aðgang þeir hafa að einingum. Oliver getur sent email til notenda sem gleymt hafa aðgangi sínum og fá þeir þá vefslóð í email til að endurstilla lykilorð sitt.
  • Eftirlit geymir allar aðgerir sem gerðar eru í kerfinu, hvenær, á hvaða einingu, hvaða notandi og margt fleira. Það fylgist einnig með hvar notendur eru að reyna að innskrá sig svo hægt sé að rekja slóð einstaklinga ef reynt er að brjótast inn í kerfið
  • Stillingar fyrir flest allar einingarnar sem og fleiri stillingar eins og staða vefsíðu sem stjórnar því hvort vefsíðan sé opin eða ekki.
  • Vefmæling fylgist með umferðinni á vefnum og er einnig á íslensku. Kerfið sem notað er við vefmælingu heitir BBClone og hefur reynst vel.
  • Fróðleikur er einnig þekkt sem FAQ á ensku gefur möguleika á að vera svör við algengum spurningum. Hægt er að flokka spurningar og svör í fróðleikshópa svo það sé betri yfirsýn yfir það efni sem spurt er.
  • Myndasafn er fyrir þá sem vilja setja myndirnar sínar á netið. Á mjög auðveldan hátt er hægt að hlaða inn mörgum myndum í einu og Oliver smækkar þær sem eru of stórar. Hægt er að snúa þeim ef myndirnar eru teknar á hlið, skrifa lýsingu við hverja mynd og sjá yfirlit yfir hvaða myndir eru mest skoðaðar.

Það ber að athuga að ekki allar þessar einingar koma með venjulegri uppsetningu af Oliver heldur er samið um heildarverð eftir því hvað kaupandi vill velja úr þessum lista


Upphafssíðan í Oliver


Yfirlit vöruflokka og undirflokka


Vörumyndir tveggja vara


Stjórnborð Síðustjóra


Uppröðun aðalvalmyndar: undirsíður og stjórnunareiningar


Oliver hefur fleiri litaafbrigði